Grenivík - 2008-07-26
Grenivík - 2008-07-26 *** Local Caption *** Grenivík tilheyrir Grýtubakkahreppi sem er við austanverðan Eyjafjörð. Í sveitarfélaginu eru 377 íbúar, tæplega 300 í kauptúninu og um 100 í blómlegri sveit suður af Grenivík. Kauptúnið stendur undir fjallinu Kaldbak sem er 1167 m hár. Skemmtilegar gönguleiðir eru upp á Kaldbak, en fyrir þá sem kjósa léttari leiðir er Þengilhöfði ákjósanlegri. Þengilhöfði er 260 m hátt fjall suður af Grenivík. Fleiri fjöll í byggðarlaginu er ögrandi að klífa svo sem Blámannshattur og Laufáshnjúkur.